logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir árum

Eldfjalladýrð

01/04/22Eldfjalladýrð
Guðmundur Óli Pálmason opnaði sýninguna Volcanoroids í Listasal Mosfellsbæjar 18. mars sl. Til sýnis eru ljósmyndir af eldgosinu í Fagradalsfjalli. Guðmundur Óli tekur ljósmyndirnar á útrunnar polaroid flysjufilmur og í framköllunarferlinu notar hann ýmis efni sem hafa óvænt og spennandi áhrif á lokaútkomuna. Ljósmyndirnar eru síðan færðar yfir í tölvu, stækkaðar upp og prentaðar út.
Meira ...

Aprílgetraunin

01/04/22Aprílgetraunin
Í barnagetraun mánaðarins er vináttan í hávegum höfð en að þessu sinni rifjum við upp nokkur þekkt barnamenningartvíeyki. Það er því kjörið fyrir góða vini að trítla í bókasafnið og taka þátt. Að sjálfsögðu munum við verðlauna einn heppinn þátttakanda þegar getrauninni lýkur. Eins og alltaf er starfsfólk safnsins boðið og búið að aðstoða alla þá sem hafa áhuga á að spreyta sig. Sjáumst í safninu!
Meira ...

Marsgetraunin

02/03/22Marsgetraunin
Hversu vel þekkir þú bókasafnið? Í barnagetraun mánaðarins má finna þrjár laufléttar spurningar um sjálft bókasafnið. Allir sem taka þátt eiga möguleika á að vinna bók! Getraunina má finna á gula hringborðinu í barnadeild safnsins. Ekki hika við að leita til starfsfólks safnsins ef ykkur vantar hjálp. Það er aldrei að vita nema það lumi á góðri vísbendingu.
Meira ...

Umhverfisvænna bókasafn

25/02/22Umhverfisvænna bókasafn
Ákveðið var 1. desember sl. að minnka plöstun á bókum í bókasafninu. Skáldsögur og ævisögur í kiljuformi eru nú ekki plastaðar. Eftir þrjá mánuði verður skoðað hvernig breytingarnar hafa gengið og hvort við getum gert enn betur í að minnka plastið. Við biðjum lánþega eftir sem áður að fara vel með bækurnar.
Meira ...

Hver hlutur á sinn stað

22/02/22Hver hlutur á sinn stað
Athugulir bókasafnsgestir hafa kannski tekið eftir því að nú eru bækurnar fyrir yngstu lesendurna merktar með staf efst í hægra horni. Þetta er nýjung á vegum Bókasafns Mosfellsbæjar til að auðvelda börnum að ganga sjálf frá bókunum í barnahorninu
Meira ...

Febrúargetraunin

01/02/22Febrúargetraunin
Goðsagnakenndar verur leynast í hverjum krók og kima í bókasafninu. Nú spyrjum við nokkrar þeirra í barnagetraun mánaðarins og verðlaunum heppinn þátttakanda með bók. Kíkið við í barnadeild safnsins og kannið málið …ef þið þorið!
Meira ...

Janúargetraunin

03/01/22Janúargetraunin
Fyrsta barnagetraunin á nýju ári er mætt í bókasafnið! Nú spyrjum við um hinar ýmsu myndasögupersónur; Tinna, Lukku-Láka og dýravininn sem er alltaf svolítið utan við sig. Líkt og áður vinnur einn heppinn þátttakandi bók. Getraunin er á sínum stað á gula borðinu í barnadeildinni og þegar þú hefur fundið svörin laumar þú svarseðlinum í gráa póstkassann. Ekki hika við að spyrja starfsfólk safnsins um aðstoð. Gangi þér vel!
Meira ...

Síða 3 af 3

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira