logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Aðstaða

Safngestir geta fengið sér kaffibolla í boði safnsins meðan þeir tylla sér niður, kíkja í blöð og bækur, eða spjalla.

Þráðlaust net er í bókasafninu og því hægt að komast á netið með eigin fartölvum. Að auki eru tölvur í eigu safnsins sem gestir safnsins geta fengið aðgang að. 

Boðið er upp á aðgang að skanna og einnig er hægt að prenta gegn gjaldi skv. gjaldskrá

Ein leitartölva fyrir almenning er tengd beint við leitarvefinn  leitir.is

Í hliðarrými Bókasafnsins (Fiskabúr) er aðstaða til að halda fundi og minni námskeið.  Jafnframt er Listasalur lánaður út til fundarhalda ef sýningarhald leyfir.

Námsfólk getur fengið aðstöðu í hliðarrými Bókasafnsins, Fiskabúrinu,  til lærdóms ef það er ekki bókað vegna funda eða námskeiða.

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira