Fréttir eftir mánuðum
LISTASALUR - EMM – „Mörður hét maður...“ - frá opnun
19/12/17
Það var margt um manninn á opnun sýningarinnar EMM – „Mörður hét maður...“ í Listasal Mosfellsbæjar laugardaginn 2. desember. Þar sýnir Kristín María Ingimarsdóttir málverk og hreyfimyndir sem innblásin eru af handriti Njálu og upphafsstöfum þess. Á opnuninni var boðið upp á léttar veitingar, m.a. M&M sem rímaði vel við heiti sýningarinnar. Dóttir Kristínar, Guðrún Ýr, söng og spilaði á flygilinn og meðlimir kórsins Söngfjelagið tóku lagið undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar. Sýningin er opin á afgreiðslutíma Bókasafnsins og stendur til 30. desember. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Meira ...BÓKASAFN - Jólapakki fyrir þig!
15/12/17Í hverjum pakkar er bók sem kemur þér á óvart. Svo er henni skilað eins og öðrum bókum að lestri loknum. Gleðileg jól
Meira ...BÓKASAFN - Vinningshafinn í nóvembergetrauninni
11/12/17Nýjasti vinningshafinn í barnagetrauninni okkar er Jenný Ísabel Sindradóttir, níu ára nemandi í Varmárskóla. Vinningurinn er að þessu sinni bókin Lukka og hugmyndavélin í svakalegum sjávarháska eftir Mosfellinginn Evu Rún Þorgeirsdóttur. Jenný er fjölhæf stelpa, því auk þess að vera lestrarhestur mikill spilar hún á saxófón
Meira ...BÓKASAFN - Í brennidepli: Jóla hvað? Desember 2017
06/12/17%20200x140.png?proc=150x150)
Desember í aðdraganda jólahátíðar er oft annasamur tími fyrir flesta, en stundum getur verið gott að gleyma sér aðeins, láta fara vel um sig og kíkja í bók. Bækurnar í brennidepli hafa að þessu sinni einhverja tengingu eða tilvísun í jól, allt frá skáldsögum, glæpasögum og ævisögum til fræði-, ljóða- og hljóðbóka.
Oft getur verið skemmtilegt fyrir fjölskylduna að hlusta saman á hljóðbók, jafnvel á meðan verið er að baka, skreyta eða pakka inn gjöfum. Þá eru Íslenskar þjóðsögur úr safni Jóns Árnasonar alltaf klassískar; ekki síst Álfa- og jólasögur. Upplesnar sígildar jólasögur og Upplesnar sígildar jólasögur á aðventunni eru klassískar jólasögur frá ýmsum löndum sem gefa einstaka stemningu í skammdeginu.
Meira ...BÓKASAFN - Leshópur eldri borgara
05/12/17.png?proc=150x150)
Leshópur eldri borgara hittist í Bókasafninu þann 4. desember en Kristín Steinsdóttir rithöfundur kom og sagði frá bókum sínum með sérstaka áherslu á bókina Á eigin vegum sem hópurinn las. Þetta var afskaplega ánægjuleg og skemmtileg stund. Næst hittumst við 8. janúar að Eirhömrum en þá ræðum við bókina Ljósmóðurina eftir Eyrúnu Ingadóttur.
Meira ...BÓKASAFN - Desembergetraun
04/12/17
Nú er komið að síðustu getraun ársins. Að þessu sinni er spurt um jólin og konunglega fíla. Spurningablaðið er sem fyrr staðsett á hringborðinu í barnadeildinni. Tilkynnt verður um vinningshafann í janúarbyrjun og fær hann bók í verðlaun. Munið að starfsfólk Bókasafnsins er tilbúið að aðstoða ef ykkur vantar hjálp. Góða skemmtun og gangi ykkur vel!
Meira ...