logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir mánuðum

Bjart yfir Listasalnum

14/12/18Bjart yfir Listasalnum
Það var margt um manninn í Listasal Mosfellsbæjar 7. desember sl. þegar Björg Örvar opnaði einkasýningu sína Barnasaga/Saga af rót (endurlit). Á sýningunni eru níu nýleg verk eftir listakonuna sem einkennast af björtum litum, kunnuglegum en þó abstrakt formum og heillandi blæbrigðum.
Meira ...

Vinningshafinn í nóvembergetrauninni

12/12/18Vinningshafinn í nóvembergetrauninni
Svandís Erla Pétursdóttir, sjö ára gömul stelpa í öðrum bekk í Krikaskóla, gerði sér lítið fyrir og vann nóvembergetraun Bókasafnsins. Svandís æfir handbolta og finnst skemmtilegast að leika eftir skóla. Það besta við jólin er að opna pakka, segir Svandís Erla og bætir við að hana langi í L.O.L. Surprise dúkku í jólagjöf. Við í Bókasafninu höfum heimildir fyrir því að dúkkum finnist gaman að láta lesa fyrir sig og hvetjum Svandísi Erlu til að komast að því hvort þær kunni að meta sögurnar um Fíusól. Svandís fékk einmitt nýjustu bókina um Fíusól, Fíasól gefst aldrei upp, í verðlaun.
Meira ...

Síðasta sýning ársins í Listasal Mosfellsbæjar er Barnasaga/Saga af rót (endurlit), einkasýning Bjargar Örvar.

03/12/18Síðasta sýning ársins í Listasal Mosfellsbæjar er Barnasaga/Saga af rót (endurlit), einkasýning Bjargar Örvar.
Síðasta sýning ársins í Listasal Mosfellsbæjar er Barnasaga/Saga af rót (endurlit), einkasýning Bjargar Örvar. Opnun er föstudaginn 7. desember kl. 16-18 og sýningin stendur til og með 11. janúar 2019. Björg Örvar er fædd í Reykjavík árið 1953. Hún lærði við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1975-79 og var í framhaldsnámi við listadeild University of California í Bandaríkjunum á árunum 1981-83. Björg hefur haldið fjölda einkasýninga á löngum ferli, síðast Haltu á mér hita árið 2017 í Grafíksalnum með úrvali af verkum síðustu tíu ára. Eins hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga heima og erlendis, síðast á tveimur sýningum á Kjarvalsstöðum árið 2015, Kvennatíma - Hér og nú þrjátíu árum síðar og Nýmálað II.
Meira ...

Í brennidepli: Hljóðbækur?

03/12/18Í brennidepli: Hljóðbækur?
Kannski svar bókaormsins við annríki. Ertu að fara í ferðalag en átt erfitt með að lesa á ferð? Langar þig að klára bókina sem þú byrjaðir á en átt líka eftir að þrífa heimilið? Eða þarftu að velja milli þess að njóta hreyfingar og útvistar eða að lesa spennandi bók sem bíður? Þá er hljóðbók svarið. Oft getur verið skemmtilegt fyrir fjölskylduna að hlusta saman á hljóðbók, jafnvel á meðan verið er að baka, skreyta eða pakka inn gjöfum. Þá eru Íslenskar þjóðsögur úr safni Jóns Árnasonar alltaf klassískar; ekki síst Álfa- og jólasögur. Upplesnar sígildar jólasögur og Upplesnar sígildar jólasögur á aðventunni eru klassískar jólasögur frá ýmsum löndum sem gefa einstaka stemningu í skammdeginu.
Meira ...

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira