Fréttir eftir mánuðum
Mæðgur halda sýningu um samband sitt
31/07/18
Frá móður til dóttur – frá dóttur til móður er heiti sýningar Jóníar Jónsdóttur og Sigurlínu Jóhannsdóttur sem verður í Listasal Mosfellsbæjar 3. ágúst til 7. september 2018. Sýningin verður opnuð föstudaginn 3. ágúst kl. 16.00. Jóní Jónsdóttir er fædd árið 1972 og býr og starfar í Reykjavík. Hún nam myndlist við skúlptúrdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Konunglega Listaháskólann í Kaupmannahöfn. Hún hefur haldið fjölmargar listsýningar og unnið við leik- og danssýningar.
Meira ...Laugardaginn 4. águst verður lokað í Bókasafninu og í Listasalnum.
24/07/18.jpg?proc=150x150)
Laugardaginn 4. águst verður lokað í Bókasafninu og í Listasalnum. Opnum aftur þriðjudaginn 7. ágúst kl. 12.00.
Meira ...Sumarlestur 2018 í Bókasafni Mosfellsbæjar
04/07/18
Fyrsta þriðjudag í júní, júlí og ágúst í sumar er hittingur fyrir sumarlestrarkrakkana í Bókasafninu kl. 14.00. Við hittumst og spjöllum; leysum þrautir og drögum út happdrættisvinninga.
Þriðjudaginn 3. júlí kom hópur krakka og tók þátt. Vinningshafar í happdrættinu voru: Lilja Sól, Sara Olivia og Emma. Allir fengu límmiða og súkkulaði.
Næst hittumst við þriðjudaginn 7. ágúst kl. 14.00.
Meira ...