logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Bjart yfir Listasalnum

14/12/2018
Það var margt um manninn í Listasal Mosfellsbæjar 7. desember sl. þegar Björg Örvar opnaði einkasýningu sína Barnasaga/Saga af rót (endurlit). Á sýningunni eru níu nýleg verk eftir listakonuna sem einkennast af björtum litum, kunnuglegum en þó abstrakt formum og heillandi blæbrigðum. Um verk Bjargar Örvar hefur listfræðingurinn Aðalsteinn Ingólfsson skrifað: „Þegar upp er staðið líkjast sköpunarverk hennar engu sem við þekkjum; eru marktækur viðauki við heimsmynd okkar fremur en einhvers konar tilbrigði um hana“. Sýningunni lýkur 11. janúar 2019 og aðgangur er ókeypis.
Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira