logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fjör á Uppskeruhátíð sumarlesturs

30.08.2024 12:10
Alls kyns hlutir og dýr litu dagsins ljós á Uppskeruhátíð sumarlesturs í safninu sl. miðvikudag. Blaðrarinn kom í heimsókn og stýrði stórskemmtilegri blöðrusmiðju af stakri snilld. Þar urðu til hundar af öllum stærðum og gerðum, sverð, framúrstefnuleg höfuðföt en einnig praktískir hlutir eins og klósettsetur... allt saman úr blöðrum!

Við minnum svo á að síðasti útdráttur úr bókaumsögnum verður strax eftir helgi, það er því síðasti sjéns að lauma einni góðri umsögn í kassann og eiga þannig möguleika á bókavinningi. Límmiðar í lestrarheftið verða í boði á meðan birgðir endast.
Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira