logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Uppskeruhátíð sumarlesturs

29/08/2022
Það var heldur betur stuð og stemming í bókasafninu fyrir helgi þegar við fögnuðum frábærum árangri þátttakenda í sumarlestri safnsins.
Við byrjuðum á því að fá heimsókn frá Bjarna Fritzsyni rithöfundi sem las fyrir okkur upp úr glænýrri bók sem er enn ekki komin út!
Eftir feikiskemmtilegan upplestur leiddi Húlladúllan hópinn út á torgið fyrir framan safnið þar sem hún sýndi okkur öll helstu húllatrixin.
Eftir sýninguna fengu bæði börn og fullorðnir að spreyta sig og var húllað af krafti þar til safnið lokaði.
Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira