logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Sætindaheimur í Listasal Mosfellsbæjar

07/09/2021
Föstudaginn 10. september kl. 16-18 verður opnun Bonís listasýningar í Listasal Mosfellsbæjar.

Bonís er sykursætur, litskrúðugur og ævintýralegur heimur. Þar búa litlar verur sem klæðast nammi- og ávaxtaflíkum og leika sér meðal sætinda. Bonís er hugarfóstur grafíska hönnuðarins Sigurðar Ó.L. Bragasonar og unninn í samstarfi við konu hans Nicole og börn þeirra tvö. Innblásturinn fyrir Bonís sækir Sigurður í ýmsar áttir, frá minningum úr barnæsku, samtölum við börn sín og ýmsa listamenn eins og hina japönsku Naoshi og Andy Warhol. Á þeim átta árum síðan hugmyndin fæddist hefur Bonís stækkað og þróast. Nú er m.a. hægt að fá ýmsan varning sem tengist myndheiminum, póstkort, fjölnota poka, sundboli og fleira, sem verður einnig hluti af sýningunni.

Síðasti dagur til að heimsækja Bonís-heiminn í Listasal Mosfellsbæjar er 8. október. Listasalurinn er inn af Bókasafni Mosfellsbæjar, Þverholti 2. Opið er kl. 12-18 á virkum dögum og kl. 12-16 á laugardögum. Gott hjólastólaaðgengi er að salnum.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira