logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Salurinn

Listasalur Mosfellsbæjar er í hjarta bæjarins, staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar í Kjarna, Þverholti 2.
Á hverju ári eru settar upp um tíu sýningar, jafnt reyndra listamanna
og nýgræðinga á sviðinu. Einnig er salurinn nýttur fyrir ýmsa viðburði eins og tónleika, fyrirlestra og fundi. Listasalur Mosfellsbæjar hefur það að leiðarljósi að vera virkur samkomustaður fyrir Mosfellinga og aðra gesti, bjóða upp á fjölbreyttar sýningar listamanna og vinna þannig að framþróun myndlistar á Íslandi. 

Salurinn er rekinn af Mosfellsbæ og hefur verið starfræktur frá 2005. Hann er opinn á afgreiðslutíma Bókasafnsins og er gengið inn í salinn úr safninu. Salurinn er um 80 fm2 að stærð og honum fylgir eldhúsaðstaða með vaski og ísskáp, aðgengi að fatahengi og salerni. Einnig geta fylgt salnum borð og 75 stólar. Skjávarpi er í salnum og sýningartjald. Gott aðgengi er fyrir hjólastóla. 

Listasalur Mosfellsbæjar er bjartur og rúmgóður salur staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar. Sýningar standa að jafnaði um fjórar vikur. Öllum er heimilt að sækja um sýningarpláss.

Búið er að úthluta sýningum fyrir árið 2024. 

 

Listasalur Mosfellsbæjar
Þverholt 2
270 Mosfellsbær

S: 566 6822
Netfang: listasalur@mos.is
www.bokmos.is/listasalur
www.facebook.com/listasalurmoso
www.instagram.com/listasalur_moso

 

 

Fréttamynd08/08/24

Sýningaropnun Smávægilegar endurfæðingar

Listasalur Mosfellsbæjar býður ykkur velkomin á opnun sýningarinnar Smávægilegar endurfæðingar eftir Ólöfu Björg Björnsdóttur föstudaginn 9. ágúst kl. 16-18.
25/07/24

Alltof mikil náttúra í Listasal Mosfellsbæjar

Sýning Þorgerðar Jörundsdóttur „Alltof mikil náttúra“ er beint framhald sýningarinnar „Of mikil náttúra“ þar sem áfram er leitast við að fjalla um líffræðilega fjölbreytni náttúrunnar á tímum hamfara...
16/04/24

Velkomin á opnun sýningar Hönnu Dísar Whitehead “Eiginleikar - Attributes” í Listasal Mosfellsbæjar laugardaginn 20. Apríl kl 14:00 - 16:00.

Velkomin á opnun sýningar Hönnu Dísar Whitehead “Eiginleikar - Attributes” í Listasal Mosfellsbæjar laugardaginn 20. Apríl kl 14:00 - 16:00.
Skoða fréttasafn

Listasalur Mosfellsbæjar

Auglýst er eftir umsóknum fyrir sýningarárið 2025.

Sótt er um á íbúagátt Mosfellsbæjar ibuagatt.is undir „umsóknir“.

Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2024.

Listasalur Mosfellsbæjar er bjartur og rúmgóður salur staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar. Sýningar standa að jafnaði um fjórar vikur. Öllum er heimilt að sækja um sýningarpláss.


Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira