Fullorðnir
Boðið eru upp á fjölbreytta viðburði árið um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Lögð er áhersla á að húsnæði safnsins þjóni gestum sem best og sé aðlaðandi þannig að allir finni sig velkomna
Vertu velkomin/n í Bókasafn Mosfellsbæjar
Leshópurinn er í samstarfi við Bókasafnið í Mosfellsbæ. Rósa Traustadóttir sem er starfsmaður Bókasafnsins hefur umsjón með starfinu.Við hittumst fyrsta mánudag hvers mánaðar kl. 10:30 yfir vetrartímann í Bókasafni Mosfellsbæjar Þverholti 2, nema annað sé tekið fram.
Leshópurinn hittist næst 2. desember.
Lesefni: Snjór í paradís e. Ólaf Jóhann Ólafsson.
Leshópurinn í heimsókn á Gljúfrasteini í október 2024.