Aðstaða
Safngestir geta fengið sér kaffibolla í boði safnsins meðan þeir tylla sér niður, kíkja í blöð og bækur, eða spjalla.
Þráðlaust net er í bókasafninu og því hægt að komast á netið með eigin fartölvum. Að auki eru tölvur í eigu safnsins sem gestir safnsins geta fengið aðgang að.
Boðið er upp á aðgang að skanna og einnig er hægt að prenta gegn gjaldi skv. gjaldskrá
Ein leitartölva fyrir almenning er tengd beint við leitarvefinn leitir.is
Í hliðarrými Bókasafnsins (Fiskabúr) er aðstaða til að halda fundi og minni námskeið. Jafnframt er Listasalur lánaður út til fundarhalda ef sýningarhald leyfir.
Námsfólk getur fengið aðstöðu í hliðarrými Bókasafnsins, Fiskabúrinu, til lærdóms ef það er ekki bókað vegna funda eða námskeiða.