Hundar sem hlusta í Bókasafni Mosfellsbæjar
23.11.2024 12:30Bókasafn Mosfellsbæjar í samstarfi við félagið Vigdísi – Vini gæludýra á Íslandi, býður börnum að heimsækja safnið laugardaginn 23. nóvember og lesa sér til ánægju fyrir hunda sem eru sérstaklega þjálfaðir til að hlusta á börn lesa.
Lestrarstundir með hundi reynast börnum vel og ekki síst þeim sem eiga við lestrarörðugleika að stríða. Hundurinn gagnrýnir ekki barnið á meðan á lestrinum stendur, hjálpar því að slaka á og liggur rólegur á meðan lesið er.
Tveir hundar verða á staðnum og hafa þeir, ásamt eigendum, fengið sérstaka þjálfun til að sinna verkefninu. Miðað er við að börn séu farin að lesa sjálf og gott er að þau hafi valið sér texta til að lesa.
Sex lestrarstundir eru í boði og er hver þeirra um 15-20 mín. Skráning fer fram á sumarfrístundarvef Völu: sumar.vala.is
Til bakaLestrarstundir með hundi reynast börnum vel og ekki síst þeim sem eiga við lestrarörðugleika að stríða. Hundurinn gagnrýnir ekki barnið á meðan á lestrinum stendur, hjálpar því að slaka á og liggur rólegur á meðan lesið er.