logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

ÁSÝND: LEIÐSÖGN OG SÝNINGARSTJÓRASPJALL MEÐ KRISTÍNU ÞORKELSDÓTTUR Á LAUGARDAG KL 15

09/10/2015
Á laugardag 10. október kl. 15 mun Kristín Þorkelsdóttir leiða gesti um sýningu sína ÁSÝND samferðamanna á lífsfleyinu í Listasal Mosfellsbæjar. Kristín mun segja frá einstökum verkum, tilurð þeirra og vinnuferli.



Á sýningunni ÁSÝND samferðamanna á lífsfleyinu, er sjónum fyrst og fremst beint að portrettverkum Kristínar Þorkelsdóttur. Í myndlistarheiminum er Kristín hvað þekktust fyrir vatnslitamyndir sínar af íslensku landslagi en hún hefur í gegnum tíðina einnig verið iðin við að fanga ásjónur samferðafólks og fjölskyldumeðlima. Ýmist með pensli, penna, blýanti eða pastelkrít. Sýningin spannar allt frá eldri teikningum að nýjum verkum og einnig verða til sýnis skissubækur, dagbækur og vinnuteikningar.



Kristín á sér langan feril að baki bæði sem grafískur hönnuður og sem myndlistarmaður. Kristín rak um árabil eina öflugustu auglýsingastofu landsins og eftir hana liggur umfangsmikið safn grafískrar hönnunar. Síðustu þrjá áratugi hefur Kristín helgað sig myndlistinni og haldið fjölda sýninga á vatnslitamyndum sínum bæði hér heima sem og erlendis. ÁSÝND samferðamanna á lífsfleyinu er fyrsta eiginlega yfirlitssýningin á portrettmyndum Kristínar. Sýningarstjóri er Birta Fróðadóttir.



Laugardagur 10.okt. er jafnframt síðasti dagur sýningarinnar.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira