logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Sýningaropnun „Inventory of the Subconscious Mind“ í Listasal Mosfellsbæjar, föstudaginn 10. febrúar kl. 16-18

08/02/2023

Sýningaropnun „Inventory of the Subconscious Mind“ í Listasal Mosfellsbæjar, föstudaginn 10. febrúar kl. 16-18

Á sýningunni má finna stafrænar klippimyndir eftir spænsku listakonuna Otilia Martin Gonzales. Þema sýningarinnar eru draumar en vegna áhuga á táknfræði hefur listiðkun hennar þróast í kringum drauma og myndrænt táknmál þeirra. 
Í verkum hennar fléttast saman skrímsli, draumar, sálfræði og töfrar. Gestum sýningarinnar er boðið í ferðalag um undirmeðvitund listakonunnar þar sem sjá má margbreytilegt myndmál, tákn, liti og áferð. 

Með verkum sínum vill Otilia Martin hvetja hvert og eitt okkar til að veita draumum okkar athygli. Draumar geta verið góð leið til að uppgötva og samþætta allar hliðar á sjálfum okkur og öðlast þar með meiri sjálfsþekkingu.

Otilia Martin Gonzalez er myndlistamaður og hönnuður. Hún er fædd í Þýskalandi, ólst upp á Spáni, en starfar og býr nú í Reykjavík. Hún hefur sýnt á Spáni, Japan, Rúmeníu, Bretlandi, Finnlandi og Ítalíu og hefur hlotið „Vazquez Diaz“ viðurkenningu fyrir verk sín á Spáni.

Síðasti sýningardagur er 10. mars 2023

Opið alla daga 9-18 og laugardaga 12-16.

                                                      


Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira