logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Sumarlestur í Bókasafni Mosfellsbæjar 10. júní - 26. ágúst 2022

10/06/2022

Boðið verður upp á árlegan Sumarlestur í bókasafninu í sumar. Markmiðið með lestrarátakinu er að hvetja börn til þess að lesa í sumarleyfinu, viðhalda þannig lestrarfærni sinni og auka við hana. Hægt er að skrá sig í afgreiðslu safnsins frá og með 10. júní. Eftir vel lukkað lestrartré síðasta sumar gerumst við enn metnaðarfyllri í ár og ætlum með hjálp dyggra lestrarhesta að endurskapa sjálfan Miðgarðsorminn í afgreiðslu safnsins. Líkt og síðustu sumur efnum við til happdrættis vikulega og höldum að sjálfsögðu uppskeruhátíð að Sumarlestrinum loknum.

Dagskrá:

  • Í sumar ætlum við að endurskapa sjálfan Miðgarðsorminn í bókasafninu. Fyrir hverja lesna bók, myndasögu, hljóðbók eða tímarit í Sumarlestrinum geta þátttakendur bætt við stykki í orminn ógurlega. Við stefnum á að Miðgarðsormurinn hafi náð að hringa sig utan um afgreiðslu safnsins í lok sumars!
  • Fyrir hverja bók, myndasögu, hljóðbók eða tímarit sem þátttakendur lesa í sumar geta þeir fyllt út bókaumsögn og skilað í kassa í barnadeildinni. Dregið verður úr bókaumsögnum vikulega í allt sumar og veittir vinningar.
  • Við munum fagna frábæru gengi þátttakenda með uppskeruhátíð 25. ágúst. Dagskrá mun birtast á heimasíðu og Facebook-síðu safnsins þegar nær dregur.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira