Fréttasafn
2024
janúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september.
2023
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2022

2021

2020
janúar, febrúar, mars, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018

2017

2016

2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
Merking á milli hluta
11.09.2020 09:43Á sýningunni Milli hluta eru aðallega þrívíð verk, framúrstefnulegir skúlptúrar sem dansa á mörkum myndlistar og hönnunar. Guðlaug Mía vinnur með ýmis efni og áferðir og notar gjarnan skala og sjónarhorn til að skapa sjónræna blekkingu. Verkin eru kunnugleg, þau minna á hversdagslega hluti en eru samt eitthvað furðuleg, bera með sér keim af algengum nytjahlutum sem má samt ekki nota. Rýmið fær yfirbragð herbergis en hvort það er skrifstofa eða stofa eða anddyri er erfitt að segja. Verkin eru á milli hluta.
Síðasti sýningardagur er 9. október. Athugið að engin opnun verður haldin sökum Covid-19. Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2. Opið er kl. 12-18 á virkum dögum og kl. 12-16 á laugardögum. Gott hjólastólaaðgengi er að salnum.