logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

BÓKASAFN - Rafbókasafnið

30/05/2017
Bókasafn Mosfellsbæjar býður nú lánþegum sínum að fá lánaðar bækur rafrænt.  Rafbókasafnið er langþráð viðbót í bókasafnaflóruna. Líkt og á öðrum bókasöfnum er safnkosturinn fjölbreyttur, en þar má finna skáldverk, fræðirit og rit almenns efnis, bæði nýtt efni og klassík. Meginhluti efnisins er á ensku og í formi rafbóka, en hlutur hljóðbóka fer ört vaxandi, enda njóta þær sérlegra vinsælda. Vonir standa til að á þessu ári muni íslenskar raf- og hljóðbækur bætast í hópinn.
Rafbækurnar má ýmist lesa á vef safnsins, rafbokasafnid.is, eða á snjalltækjum í gegnum appið Overdrive. Þannig geta lesendur notað hvert tækifæri til að lesa sínar bækur, í síma eða á spjaldtölvu, hvar sem er og hvenær sem er. Í raun þýðir þetta að lesendur hafa heilt bókasafn í vasanum. Rafbókasafnið er alltaf opið og þar eru engar sektir, því kerfið sér sjálft um að skila bókum þegar lánstími er útrunninn.


Vefslóð Rafbókasafnsins er http://rafbokasafnid.is

Leiðbeiningar fyrir Rafbókasafn


Rafbókasafnið
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira