logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Listasalur Mosfellsbæjar - Vinningshafi í Álfabókagetraun

30/05/2016

Fjöldi gesta tók þátt í getrauninni sem var á sýningunni ÁLFABÆKUR sem var í Listasal Mosfellsbæjar í maí. Nokkrir voru nálægt tölunni en bara einn sem komst næst fjöldanum og hlýtur hann listaverkið.
Heppni vinningshafinn er Steinarr Logi Þrastarson og naut hann hjálpar móður sinnar.
Álfabókasýning Guðlaugs Arasonar vakti mikla ánægju gesta og eru Álfabækur nú á ferð um landið. Einhvern tíma seinna gæti Álfabókasýning ratað aftur til okkar í Bókasafnið og Listasal Mosfellsbæjar.

Mynd:
Steinarr Logi Þrastarson og móðir hans Hrefna Guðmannsdóttir taka við listaverkinu úr hendi starfsmanns Listasalarins.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira